Besta flugfélagið þegar litið er til þjónustu á almennu farrými þar sem langflestir fljúga er hið bandaríska JetBlue samkvæmt könnun Zagat sem er virt könnunarfyrirtæki.
Verðlaunin fær JetBlue bæði fyrir betri þjónustu flugþjóna og besta afþreyingarkerfi í vélum sínum og síðast en ekki síst vegna lítilla tafa.
Hvað erlend flugfélög varðaði tók hið breska Virgin verðlaunin. Hvað lúxusfarrýmin varðar varð Continental hlutskarpast í þessari könnun en valið stóð milli 16 bandarískra flugfélaga og 74 erlendra auk þess sem kosið var um 30 flugvelli í Bandaríkjunum. Tóku átta þúsund einstaklingar þátt.
Könnun Zagat hér.






