Þar kom að því. Tíu mánuðum eftir að ritstjórn Fararheill varaði við ferðum til Tyrklands bætist utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í hópinn.

Ekki þykir ólíklegt að Antalya og vinsælar strendur Tyrklands séu hugsanleg skotmörk hryðjuverkamanna.

Ekki þykir ólíklegt að Antalya og vinsælar strendur Tyrklands séu hugsanleg skotmörk hryðjuverkamanna.

Formleg viðvörun hefur nú verið gefin út af hálfu Bandaríkjastjórnar til handa þegnum sínum að forðast að ferðast um suðausturhluta landsins og sérstakar viðvaranir til fólks á leið til Istanbúl og Antalya. Bandaríkjamenn telja töluverðar líkur á að á þessum vinsælu ferðamannastöðum gætu vígamenn hins íslamska ríkis látið til skarar skríða.

Með það í huga að Kaninn hlerar síma allrar heimsbyggðarinnar meira og minna og hefur þúsundir njósnara um víða veröld væri kjánalegt að taka aðvaranir þeirra ekki alvarlega. Og þar sem hryðjuverkamenn fara yfirleitt ekki í manngreinarálit er óhætt fyrir Íslendinga að taka ábendingar þeirra alvarlega.

Hér má lesa um okkar viðvörun frá júlí á síðasta ári.