Það er fátt í heiminum sem hefur hækkað meira undanfarin ár en hlutabréf í Apple. En hækkanir á bílastæðum við flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík fara langt með það.

Hundruð prósenta hækkanir á bílastæðisgjöldum við Leifsstöð og það í annað skipti á skömmum tíma. Mynd FIB

Hundruð prósenta hækkanir á bílastæðisgjöldum við Leifsstöð og það í annað skipti á skömmum tíma. Mynd FIB

Þann 1. apríl síðastliðinn hækkuðu bílastæðisgjöld við eina alþjóðaflugvöll landsins um allt að 120 prósent samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðareigenda. Sem þýðir að bílastæði hvern sólarhring í skammtímaleigu kostar 1.250 krónur en langleiðina í 9.000 krónur ætli ferðafólk að geyma bíl sinn vikutíma og eðli máls samkvæmt hátt í átján þúsund krónur ef fólk er að dunda sér í tvær vikur á sólarströnd.

Það er drjúg upphæð fyrir bílastæði í landi þar sem meðallaun fólks slefa í 284 þúsund krónur eftir skatta og í annað sinn á fjórum árum sem Isavia hækkar bílastæðisgjöld sín verulega.

Isavia segir brýna þörf á hækkun vegna þess að bílastæði séu of fá og hala þurfi inn pening til að malbika 300 bílastæði til viðbótar. Bílastæði við völlinn eru sem sagt of fá miðað við ferðaþorsta landsmanna.

Víst eru Íslendingar að flýja til útlanda í ríkari mæli, tímabundið eða til langtíma, en hefur verið raunin um langt skeið. Það sýna opinberar tölur að við erum að ferðast svipað eða meira en „góðárið“ 2007.

En við erum samt að ferðast minna hlutfallslega. Vegna þess að ekki er tekið tillit til að Íslendingar eru fimmtán þúsund fleiri nú en við vorum árið 2007.

Í öllu falli birtust engar fréttir af bílastæðishallæri við Leifsstöð árið 2007 í fjölmiðlum. Yfirmaður Leifsstöðvar þá var ekki að rífa hár sitt og skegg yfir bílastæðishallæri.

Gott og blessað.

Vikugjaldið við Leifsstöð er í dag 30% hærra en að geyma bílinn í sama tíma við Kastrup í Kaupmannahöfn. Vikugjaldið við Leifsstöð er í dag 10% hærra en að geyma bílinn í sama tíma við Pearson í Toronto. Vikugjaldið við Leifsstöð í dag er 3% hærra en að geyma bílinn í sama tíma við Arlanda í Stokkhólmi. Vikugjaldið við Leifsstöð er í dag 52% hærra en að geyma bílinn í sama tíma við Gardemoen í Noregi.*

Hér skal hafa í huga að það eru ekki túristar sem taka stæði við flugvelli. Það eru innfæddir. Meðaltekjur í öllum ofangreindum löndum eru mun hærri en á Íslandi.* Meðalmánaðarlaun í Kaupmannahöfn eru 763 þúsund krónur, meðalmánaðarlaun í Osló nema 800 þúsund krónum. Meðallaun í Toronto eru 475 þúsund krónur. Meðallaun í Stokkhólmi nema 580 þúsund krónum.

Þegnar þessara borga hafa allir vel rúmlega helmingi hærri tekjur en meðal Íslendingur. Samt greiða þeir MINNA fyrir bílastæði við alþjóðaflugvelli sína.

Er það nú alveg eðlileg þróun Björn Óli Hauksson? Líka þegar haft er í huga að Isavia hefur tekið inn feitan hagnað um áraraðir. Tólf milljarða króna hagnað á síðustu fimm árum sem að öllu eða mestu leyti hefur farið inn í Isavia að nýju.

Hvað segirðu Bjössi? Allt eðlilegt bara?

* Ódýrustu stæði í boði.