Kannski finna forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair til með elítu landsins sem nú er undir smásjá vegna Panamaskjalanna frægu. Hvernig annars má útskýra að hægt er að finna Saga Class fargjöld hjá flugfélaginu á lægra verði en greitt er fyrir sæti á sardínufarrými?

Saga Class á sardínufarrýmisverði hljómar ekki illa.

Saga Class á sardínufarrýmisverði hljómar ekki illa.

Það er varla of langt seilst að fullyrða að þorri landsmanna á sínum lágu krónulaunum hefur sjaldan eða aldrei flogið á dýrasta farrými Icelandair þar sem sæti eru djúp og breið, matur og drykkir fríir, farmiðabreytingar án kostnaðar, tvær töskur ókeypis og nægilegur fjöldi vildarpunkta fæst fyrir til að fljúga frítt í næsta skipti.

Farmiðar á Saga Class svona heilt yfir kosta oft þrefalt til fjórfalt meira en miðar á hefðbundnu farrými sem útilokar velflesta landsmenn sem ekki líst vel á að greiða 200 þúsund krónur fyrir skottúr til Evrópu. Það mánaðartekjur hjá atvinnulausum og öryrkjum mörgum.sagg

Fararheill hefur á flakki um bókunarvef Icelandair; bókunarvef sem nýlega var uppfærður og stífbónaður, rekist á eitt og annað undarlegt. Til dæmis að Saga Class pakkinn er stöku sinnum í boði á lægra verði en sæti á lakari farrýmum. Við látum tvo dæmi hér að neðan fylgja svona ef einhver dregur orð okkar í efa.

Við þurfum ekkert að hafa samband við flugfélagið til að fá skýringu á þessu. Icelandair er ekki góðgerðafélag og engar líkur á að sæti á dýrasta farrými á háannatíma til vinsælla áfangastaða séu sett á útsölu sísona. Þetta eru næsta ábyggilega mistök.sagg2

Plúsinn þó að slík mistök gerast alltaf annars lagið hjá flugfélögum sem nota verulega flóknar reiknikúnstir til að reikna út verð á flugi hingað og þangað. Og ef við sauðsvartur almúginn dettum um slíkt eigum við umsvifalaust að grípa gæs. Gæta þess bara að taka skjáskot og eiga afrit ef okkur er synjað í bókunarferlinu sjálfu. Lög kveða á um að neytendur eigi skýlausan rétt á að kaupa vörur eða þjónustu á auglýstu verði.

Það er því komin ástæða næst þegar þú bókar flug með Icelandair að gjóa augum líka á dýrustu farrýmin. Hver veit nema þar sé verð lægra en ella.