Við hjá Fararheill vöndum yfirleitt ekki kveðjurnar þegar fyrirtæki troða á eða blekkja fólk með einhverjum hætti. En við erum líka fyrst til að standa upp og klappa þegar og ef fyrirtæki gera meira og betur við fólk en almennt er raunin.

Forstjóri Wow Air kemur á óvart. Mynd Wow Air

Forstjóri Wow Air kemur á óvart. Mynd Wow Air

Wow Air á skilið lof í lófa þennan daginn og reyndar þó fyrr hefði verið. Lofið varðar viðbrögð flugfélagsins við bilun í einni rellu Wow Air á Kanarí þann 2. apríl sem þýddi að tæplega 200 farþegar voru strandaglópar í tæpan sólarhring.

Við fjölluðum um þetta daginn eftir og bentum fólki á að sækja skilyrðislaust rétt sinn. Sólarhrings töf vegna vélarbilunar er nánast hundrað prósent ávísun á skaðabætur fyrir utan hótel og mat sem flugfélagið á að skaffa á meðan töfinni stendur. Skaðabæturnar heldur ekkert klink í þessu tilfelli eða 84 þúsund krónur á hvern farþega.

Reyndin hefur verið sú hjá innlendum aðilum að slíkar bætur hefur verið tímafrekt og oft flókið að sækja. Ferðaskrifstofur og flugfélög hafna gjarnan bótagreiðslum og jafnvel malda í móinn mánuðum saman ef fólk leitar til Samgöngustofu vegna mála. Sumir aðilar, eins og Primera Air, ganga svo langt að hafna niðurstöðu Samgöngustofu og senda málið alla leið til innanríkisráðuneytis og eða dómstóla ef þeim mislíkar.

Nú hefur okkur verið bent á að fylli farþegar í ofangreindu Kanaríflugi Wow Air út bótabeiðni hjá flugfélaginu komi þessi skilaboð:

„Við samþykkjum kröfuna þína upp á 400 EUR. Við viljum hinsvegar bjóða þér að velja á milli eftirfarandi:

* inneign hjá WOW air að andvirði 85.000 ISK°°
eða
* það sem samsvarar 400 evrum í íslenskum krónum°°°°

Við hlökkum til að heyra frá þér og vonumst til að sjá þig fljótlega um borð.

Aldeilis frábært. Forsvarsmenn vitað upp á sig sökina um leið og í stað þess að setja haus undir sig og mótmæla bótakröfum eins og reglan hefur verið hérlendis þá er allt annar og betri póll tekinn í hæð. Wow Air fellst umsvifalaust á bótakröfur farþega. Svona eiga flugfélög að rokka.

En við erum reyndar svo leiðinleg hér að við finnum okkur knúin til að gera eina athugasemd samt. Ef allt væri rétt ætti peningagreiðsla Wow Air líka að vera 84 þúsund krónur en ekki 400 evrur. 400 evrur miðað við gengi dagsins er aðeins rúmar 56 þúsund krónur eða tæplega 30 þúsund króna lægri upphæð en fólk á rétt á samkvæmt Evrópulögum.

Gott trix samt hjá Skúla og félögum. Fólk vill yfirleitt fá hlutina strax og fyrir mörgum er sniðugt að fá 56 þúsund inn á heftið eftir nokkrar vikur en að fá 84 þúsund eftir marga mánuði. Á því leikur enginn vafi að fari fólk með þetta fyrir Samgöngustofu verður niðurstaðan pottþétt 600 evra útborgun sem nemur 84 þúsund  krónum.

Þrátt fyrir þetta er alveg óhætt að lofa Wow Air í þessu tilfelli. Meira svona takk!