Líklegt má telja að engir nema fréttafíklar hafi veitt því mikla athygli að Tyrkir réðust fyrsta sinni á hersveitir hins íslamska ríkis í Sýrlandi fyrr í vikunni. Það gæti vel haft afleiðingar fyrir ferðafólk við Miðjarðarhafsstrendur Tyrklands.

Rólegt og fallegt. En verða bæir og borgir við strendur Tyrklands næstu skotmörk ISIS? Mynd Tom Jutte
Það þarf ekki flottar gráður úr alþjóðastjórnmálum til að átta sig á að Tyrkland er kjörið skotmark hryðjuverkamanna ISIS. Samtökin illræmdu hafa ítrekað hótað að ráðast á vestrænt ferðafólk síðustu misserin og gert alvöru úr meðal annars í Túnis eins og flestum er kunnugt. Og Tyrkland sækja milljónir erlendra ferðamanna heim allan ársins hring.
Fyrir samtök á borð við ISIS er jafnvel einfaldara að ráðast á erlenda ferðamenn á Tyrklandsströndum en fara alla leið til Afríku og gera óskunda þar. Efist einhver um það nægir að skoða viðvaranir breskra stjórnvalda frá júní á síðasta ári þegar ferðalöngum til Tyrklands var bent á að ISIS gæti mjög líklega framið ódæðisverk í Tyrklandi ef vilji stæði til. Síðan þá hefur ISIS-liðum aðeins vaxið ásmegin.
Kannski útskýrir það hvers vegna tyrknesk stjórnvöld hafa hingað til haldið sig að mestu á hliðarlínunni gagnvart þessum hryðjuverkasamtökum þó barist sé harkalega í nágrannaríkjunum. En hafi það verið raunin áður er það liðin tíð nú. Nú hefur ISIS einhvers að hefna gagnvart Tyrkjum. Hvað betra til þess en eyðileggja túrismann í landinu. Túrisma sem telur rúmlega tíu prósent af árlegri þjóðarframleiðslu landsins.
Engin ástæða til að fara á taugum en kannski ágætt að hafa í huga fyrir þá sem huga að ferðum til sendinna og sólríkra stranda Tyrklands.







