Flugfélagið Primera Air virðist ekki geta gert mjög margt rétt. Ekki einu sinni þegar það er flugfélaginu í hag.

Lægsta verð reynist ekki vera lægsta verð við nánari athugun. Skjáskot

Lægsta verð reynist ekki vera lægsta verð við nánari athugun. Skjáskot

Flennistór auglýsing frá Primera Air skreytir nú forsíðu vefs Morgunblaðsins þar sem kynntir eru áfangastaðir flugfélagsins. Allt fínir staðir heimsóknar: Malaga frá 29.995 og Alicante, Barcelóna og Tenerife frá 19.995 krónur aðra leið með sköttum og gjöldum.

Ekkert hræðilegt hér á ferð. Primera hér að bjóða helmingi lægra verð til Barcelóna en Icelandair. Sem er drjúgur munur jafnvel þó hið síðarnefnda bjóði farangur með. Á móti kemur að spænska flugfélagið Vueling selur sæti þá leiðina líka allt niður í tólf þúsund krónur rúmar eða 250 prósent lægra verð en lægsta verð hjá Icelandair.

Fargjöld niður undir fjórtán þúsund fást hjá Primera þegar þetta er skrifað. Skjáskot

Fargjöld niður undir fjórtán þúsund fást hjá Primera þegar þetta er skrifað. Skjáskot

Helst kannski að reka augun í verðið til Malaga hjá Primera Air. Það er jú ekki mikið lengra að fljúga þá leiðina en til Alicante en samt er 10 þúsund króna munur á lægsta verði. Eitthvað athugavert við það.

Verst þó, eða best eftir því hvernig á það er litið, að rekast á flug til Alicante niður í 13.995 krónur í mars og apríl á vef flugfélagsins!!!

Hvað Primera-menn græða á að auglýsa langtum dýrari fargjöld en þeir selja skal ósagt látið en þetta verður að teljast nýjung í markaðssetningu. Slæm nýjung samt því það þýðir að viðskiptavinurinn getur ekki treyst auglýstu lægsta verði á flugi.