Enginn úr ritstjórn Fararheill hefur persónulega stigið fæti niður í Coloradofylki í Bandaríkjunum en þangað hafa verið ferðir af hálfu Icelandair um tíma í beinu flugi frá Fróni. Við verðum því að sinni að nýta okkur upplýsingar annars staðar frá til að fá einhverja hugmynd um hvað hlutirnir kosta í skíðabrekkum Klettafjalla.

Fjallabærinn Breckenridge er einn sá ódýrasti sem í boði er ætli fólk á skíði í Klettafjöllum

Fjallabærinn Breckenridge er einn sá ódýrasti sem í boði er ætli fólk á skíði í Klettafjöllum

Svo vill til að hinn hagsýni ferðamaður New York Times, Frugal Traveler, var einmitt á þvælingi í brekkum Colorado í byrjun skíðatímabilsins þar og skýrir skilmerkilega frá verðlagi á nokkrum veigamiklum hlutum á leið sinni.

Ferð blaðamanns NYT er reyndar aðeins tveir dagar í flugi frá New York og því ekkert á því að byggja fyrir Íslendinga sem verða að greiða meira fyrir flugið og fara varla í svo stutta ferð svo langa leið.

Engu að síður segir það ákveðna sögu að hagsýni ferðamaðurinn telur sig eiturheppinn að ná að dekka flugið, gistingu, skíðapassann og bílaleigubíl í tvo sólarhringa fyrir 118.000 krónur. Það verð nær reyndar aðeins yfir lágannatíma og nær til allra ódýrustu valkosta. Enginn sagði að skíðasvæðin hér væru ódýr.

Í Breckenridge finnur okkar maður í Colorado gistingu á einföldu gistiheimili fyrir rétt rúmar 7 þúsund krónur en Breckenridge er einn allra ódýrasti skíðastaðurinn á svæðinu. Vænlegra herbergi með einkasturtu og morgunverði finnst á 20.000 til 18.000 krónur nóttin.

Leiga á skíðabúnaði hvort sem er skíðum eða brettum reynist vera 5.500 krónur á dag að því gefnu að slíkt sé pantað á netinu með fyrirvara. Dagspassi í brekkurnar fékkst hins vegar ekki undir 14.000 krónum en sá reyndar gefur færi á að skíða á fleiri en einum stað.

Verðlag virðist hækka ört eftir því sem ofar er farið í brekkunum. Grípi menn eina pizzusneið í veitingaskála í brekkunum þarf að punga út 1.600 krónum til eða frá og jafnvel þó menn nískist eins Jóakim Aðalönd finnst ekki samloka í verslun undir 800 krónum.

Og þetta eru verð á allra ódýrasta skíðasvæðinu. Það segir manni að skíðaferðir til Kolóradó eru ekki alveg að gera sig fyrir íslenskan meðalplebba með sín meðal mánaðarlaun. Þá er nær að hoppa til Evrópu eða sleppa alfarið skíðaferðum.