Þig dauðlangar út í heim en ekki alveg viss hvert eða hvenær. Kannski færðu hugljómun ef þú kíkir inn á vefi flugfélaganna easyJet og Vueling þessa stundina. Bæði eru að henda út útsölusætum í massavís.

Kannski finnur þú draumaferðina á botnverði hjá Vueling þessa stundina.

Kannski finnur þú draumaferðina á botnverði hjá Vueling þessa stundina.

Bæði fljúga til og frá Íslandi eins og flestum ætti að vera kunnugt. EasyJet til Skotlands, Englands, Sviss og Írlands og Vueling til Ítalíu og Spánar. Bæði eru jafnframt meðal bestu lággjaldaflugfélaga heims samkvæmt World Travel Awards.

Á söluskrá Vueling eru núna fram til 8. febrúar rúmlega milljón flugsæti til hinna ýmsu áfangastaða niður í 3.500 krónur aðra leið á mann. EasyJet hefur lækkað verð á tugþúsundum sæta og þar líka hægt að finna flug niður undir fjögur þúsund krónur.

Hjá báðum þarf að greiða aukalega fyrir töskur svo þar kemur viðbót ef þörf er á en jafnvel með töskudruslu meðferðis er ekki hægt að kvarta undan því að fljúga til og frá ýmsum borgum Evrópu og Afríku fyrir 20 þúsund krónur eða svo.