E itt er það sem allir þeir sem hyggjast fara í siglingar frá Bandaríkjunum ættu að hafa í huga áður en þeir panta ferð sína. Fáið endilega send tilboð frá ferðaskrifstofum sem sérhæfa sig eingöngu í siglingum.

Það er ekki ódýrt að þvælast um heimsins höf og njóta en hægt er að verða sér úti um dágóð tilboð með því að nota milliliði.

Það er ekki ódýrt að þvælast um heimsins höf og njóta en hægt er að verða sér úti um dágóð tilboð með því að nota milliliði. Mynd Ragingwire

Ritstjórn hefur um tíma aðstoðað allnokkra aðila sem hug hafa á að sigla um heimsins höf á eigin spýtur og hefja siglinguna frá Flórída í Bandaríkjunum. Flestir hafa það líka bak við eyra að hægt er að spara allmarga seðla með því að gera hlutina sjálfir og vera sveigjanlegir.

Ýmsar leiðir eru færar til að komast í lúxus siglingu á lágmarksverði.

Stundum bjóða skipafélögin sjálf úrvals afslætti rétt fyrir brottför. Stundum eru ferðaskrifstofur í Evrópu að bjóða hagstæðari verð en skipafélagið sjálft og í stöku tilfellum eru íslenskar ferðaskrifstofur að bjóða það skársta sem hægt er að finna því fólk þarf jú að koma sér til Bretlands eða Bandaríkjanna og ferðaskrifstofurnar fá þar umtalsverða afslætti framyfir einstaklinga.

Það er einn aðili til viðbótar sem getur aldeilis sparað skildinginn. Ekkert íslenskt orð er til um slíka aðila en um er að ræða nokkurs konar blöndu af ferðaskrifstofu og leitaraðila sem sérhæfir sig í siglingum. Umræddir aðilar selja þó ekki ferðir per se heldur safna saman, eftir ósk viðskiptavinar, allra bestu ferðum helstu ferðaskrifstofa vestanhafs og senda þér í pósti.

Ferðir  sem þannig fást gilda aðeins í skamman tíma og því ráð að skrá sig ekki í slíka þjónustu nema vera viss um brottfarardag eða hafa ferðatímann nokkuð á hreinu. Aukinheldur eru þau verð sem þú færð send trúnaðarmál. Ástæðan fyrir því er sú að ekki er um opinber verð að ræða heldur vegna þess að verð eru á stundum töluvert undir opinberu verði og það mega ferðaskrifstofurnar ekki auglýsa með opinberum hætti.

Ritstjórn ætlar ekki brjóta trúnað við einn né neinn en við getum þó skýrt frá því að sjö daga sigling um Karíbahafið sem við aðstoðuðum tvenn hjón að kaupa fyrir skömmu og átti að kosta 240 þúsund krónur á manninn hjá skipafélaginu sjálfu fékkst gegnum slíkan aðila fyrir aðeins 172 þúsund krónur.

Tveir aðilar sem eru sérstaklega góðir og við getum mælt með fyrir áhugasama eru Cruisemuse.com og Cruisecompete.com. Í báðum tilfellum þarf að skrá sig, skilyrða hvaða ferðir nákvæmlega fólk hefur áhuga á og tilboð ættu að byrja að streyma í pósthólfið fljótlega í kjölfarið.

Þetta hefur ritstjórn reynt töluvert síðustu mánuðina og undantekning er að ekki finnist nokkuð betri verð en hjá hefðbundnum ferðaskrifstofum eða skipafélaginu sjálfu. Gæta skal þess þó að skoða smáa letrið gaumgæfilega því munað getur milli aðila hvort skattar og gjöld, þjórfé, drykkir eða annað slíkt er innifalið eða aukakostnaður. Þá eru og sumir aðilar sem selja ekki öðrum en Bandaríkjamönnum beint og best að kanna það áður reynt er að bóka.