Fæstir eru sennilega á þeim buxum í byrjun febrúar að ákveða undir hvaða sól skal stytta næsta vetur. Kanaríeyjar auðvitað alltaf klassískar í því tilliti. En okkur hefur náttúrulega aldrei áður boðist beint flug til Kaliforníu heldur.

California Dreaming er frægt gamalt dægurlag. Það þarf þó ekki að láta sig dreyma mikið lengur.

California Dreaming er frægt gamalt dægurlag. Það þarf þó ekki að láta sig dreyma mikið lengur.

Flugið er vissulega langt en á móti kemur að Kalifornía er stútfull af skemmtilegum hlutum og fólki. Né heldur er miður að þessa stundina er komist fram og aftur til gullna fylkisins með Wow Air á svipuðu verði og það kostar okkur að fljúga til Kanaríeyja.

26.999 krónur kostar nú fargjald til Los Angeles og San Francisco með Wow Air og miðað við ferðatíma í lok árs frá október og fram til desember. Leit Fararheill leiðir líka í ljós að fyrir sama pening er einnig komist til baka. Ergo: flug fram og aftur fyrir svo lítið sem 55 þúsund krónur á mann. Það er svona mjög gróflega helmingi lægra verð en við þurfum að greiða þegar nær dregur.

Flottur prís sannarlega en eins og endranær er ekkert innifalið svo bæta þarf ofan á þurfi fólk farangur með. Hér þarf þó að hafa hraðar hendur. Leit okkar leiðir í ljós að „fá sæti“ eru eftir á velflestum dagsetningum.