Nú tæmast strendur og hótel víða sunnar í álfunni í Portúgal og á Spáni þó enn sé þar kjörhitastig fyrir veðurbarða Frónbúa. Reyndar er ekki hlaupið að því að komast þangað nú þegar flugfélögin hafa öll hætt reglulegum ferðum sem er synd hin mesta því allra bestu kjör á alls kyns ferðapökkum eru akkurat næstu mánuðina.

Loks þegar allra bestu tilboðin eru í boði er enginn aðili að bjóða ferðir héðan til suðrænni landa

Loks þegar allra bestu tilboðin eru í boði er enginn aðili að bjóða ferðir héðan til suðrænni landa

Meðal þess sem Fararheill hefur rekist á að undanförnu eru ýmis æði ljúf golftilboð bresku ferðaskrifstofunnar Golfbreaks. Sú reyndar er ekki að bjóða flug til og frá en sé fólk statt í Portúgal á annað borð næstu mánuðina er hægt að gista þar og leika golf á verði sem ætti ekki að flækjast fyrir mörgum.

Eitt af mörgum góðum er sjö nátta pakki á fjögurra stjörnu hóteli í Carvoeiro á Algarve með morgunverði og fimm hringjum á þremur mismunandi golfvöllum fyrir 47.900 krónur á mann miðað við tvo. Samtals 95.800 krónur miðað við miðgengi dagsins sem þýðir að hver dagur kostar parið 13.685 krónur. Það er brandari.

Meira af tilboðum Golfbreaks hér.