Ahhhh. Hvað hörð samkeppni er nú af hinu góða. Það má sannarlega til sanns vegar færa vestur í Bandaríkjunum og það á Hawaii nánar tiltekið. Þar hefur hótel eitt í ódýrari kantinum bryddað upp á þeirri nýbreytni að bjóða bílaleigubíl í kaupbæti með herberginu.
Við erum ekki hundrað prósent hvort þetta hefur verið gert áður en allavega fyrsta skiptið sem við sjáum slíkt tilboð og stór spurning hvort þetta sé ekki einmitt það sem koma skuli þegar samkeppni um túristaseðla fer sífellt vaxandi. Auðvitað allra einfaldast að afgreiða bílaleigu með þessum hætti. Ekkert stress og vesen þar.
Það er Kauai Sands Hotel á eynni Kauai, ein eyjanna í Hawaii-klasanum, sem þetta er að bjóða og það frítt með hverju herbergi. Einhver gæti haldið að fyrir vikið kosti herbergið fúlgur en svo er ekki. Hægt er að gista þarna nótt og fá bílinn með fyrir rétt tæpar 20 þúsund krónur íslenskar.








