Ó ráð nema í tíma sé tekið predikuðu menn með vit í kolli hér áður og Fararheill tekur heils hugar undir hvað ferðalög varðar. En ekki áttum við von á við skoðun á flugi til Flórída í október á næsta ári að Icelandair byði þar töluvert betur en besta lággjaldaflugfélag Evrópu. Það gera þeir bara samt.
Lengi vel hefur Fararheill dásamað norska lággjaldaflugfélagið Norwegian til skýjanna og margar góðar ástæður til. Þar hæst sú staðreynd að verð á ferðum þeirra, undantekningarlítið, smellpassar við buddu flestra og gerir fólki kleift að ferðast sem ekki hafði tök á því áður.
En svo bregðast krosstré sem önnur eins og starfsmenn kirkjugarðanna segja gjarnan.
Ætli menn sér að vera ráðagóðir og skoða ferðir til Flórída tæpt ár fram í tímann, en með slíkri fyrirhyggju er ætíð hægt að spara drjúgan skilding, kemur í ljós að Icelandair með farangur innifalinn býður betur til Orlando en Norwegian án farangurs býður til Fort Lauderdale.
Ok, tæknilega er um tvo staði að ræða og vissulega er ekki alveg jafn langt til Flórída frá Osló og Keflavík en engu að síður er þetta töluvert afrek. Aldrei áður hefur ritstjórn rekist á að Icelandair sé að bjóða betur en hinir norsku og höfum við samt gert kannanir nokkur ítrekað um tíma.
Hvort þetta verður breytt á morgun eða síðar í dag skal ósagt látið en á þessari stundu, klukkan 12 á hádegi þriðjudaginn 12. nóvember 2013, er Icelandair að bjóða best 82.190 krónur flug fram og aftur til Orlando í október 2014 meðan allra besta boð Norwegian sama mánuð kostar 85.800 krónur. Ofan á það verð á eftir að bætast farangursgjald því afskaplega fáir þvælast nærbuxnalausir til Flórída.










