Það fór sem við spáðum. Yfirgnæfandi meirihluta þátttakenda í könnun Fararheill finnst súrt og lélegt að Icelandair og Wow Air ætli sér aðeins að bjóða upp á næturflug heim til Íslands frá Spáni næsta sumar.

Tæplega 60% finnst fyrir neðan allar hellur að lenda hér heima um hánótt í áætlunarflugi frá Spáni

Tæplega 60% finnst fyrir neðan allar hellur að lenda hér heima um hánótt í áætlunarflugi frá Spáni

Við skýrðum frá þessu rugli fyrir rúmri viku síðan en raunin er sú að næsta sumarið verða farþegar í áætlunarflugi Wow Air frá Alicante og Icelandair frá Barcelóna að mestu leyti að gera sér að góðu að lenda í Keflavík um hánótt.

Okkur hjá Fararheill finnst það herfilega léleg þjónusta frá helsta sumarleyfisstað landsmanna og athugun hjá vinsælum flugfélögum sýna að slíkt er almennt ekki gert. Norwegian til að mynda dettur ekki í hug að bjóða ferðir frá Alicante síðar en upp úr hádegi og því lent í Osló um miðbik dags. Meira að segja Ryanair kemur farþegum sínum frá Alicante til London eigi síðar en um miðnætti. Eina undantekningin sem við fundum í fljótu er með easyJet.

Þetta kemur ekki aðeins við þá sem ferðast á eigin spýtur heldur og þeim er ferðast með ferðaskrifstofum sem nota þjónustu þessara tveggja flugfélaga.

Niðurstöðurnar afgerandi

Niðurstöðurnar afgerandi. Þátt tóku 423 alls.