Það koma nokkrir staðir á óvart þegar skoðaður er listi leitarrisans Google yfir þá staði jarðar sem allra mest var leitað að á miðlum þess risa árið 2013. Gamla, góða Mallorca sérstaklega kemur feiknalega sterkt inn.

Ótrúlega vel gengið að koma Mallorca á framfæri þetta árið

Ótrúlega vel gengið að koma Mallorca á framfæri þetta árið

Árslistar Google birtast nú einn af öðrum en eins og fólk veit hefur aldrei í sögunni verið auðveldara að fylgjast með og mæla nákvæmlega hvað fólk er að gera hverju sinni á netinu. Google þar enginn eftirbátur. Þess vegna er sennilega hundrað prósent að marka lista þeirra yfir áfangastaði jarðar sem mest er leitað að.

Ferðaþjónustuaðilar í Róm geta opnað nokkrar kampavín án samviskubits því það var sá staður sem heimsbyggðin leitaði mest að á vefum Google þetta árið. Google getur þess ekki hvort fyrir liggi ástæður þessa en leiða má líkum að því að Páfagarður og örar breytingar þar innandyra á árinu hafi eitthvað um vinsældar Rómar að segja.

Næst kemur New York sem er ávallt ofarlega á slíkum listum og í þriðja sætinu er Amsterdam. Skondið sé hugsað til þess að eitt sinn hét New York New Amsterdam.

Sérstaka eftirtekt vekur að spænska eyjan Mallorca virðist á mikilli siglingu. Tveir staðir á þeirri litlu eyju komast á topplista Google.

Topp 15 áfangastaðir eru annars þessir 2013:

  1. RÓM
  2. NEW YORK
  3. AMSTERDAM
  4. PALMA (MALLORCA)
  5. MAGALUF (MALLORCA)
  6. BANGKOK
  7. SIDNEY
  8. BRUGGE
  9. FENEYJAR
  10. MÁRITÍUS