Sé bókað flug aðra leiðina til Barcelóna á Spáni næsta sumar kemur í ljós að í júlí og ágúst er hagstæðara að kaupa miða með Icelandair en lággjaldaflugfélaginu Wow Air frá landinu ef ein taska er með í för. Þessi tvö íslensku bjóða þó ekki jafnvel yfir línuna og spænska flugfélagið Vueling á þessari flugleið.

Spænska flugfélagið Vueling flýgur milli Keflavíkur og Barcelóna allt næsta sumarið og býður best að meðaltali

Spænska flugfélagið Vueling flýgur milli Keflavíkur og Barcelóna allt næsta sumarið og býður best að meðaltali

Fararheill hefur sagt það áður og ítrekar að það innlenda flugfélag sem aftur og aftur lofar allra lægsta verði á flugi er aftur og aftur ekki með lægsta verð á flugi þegar til kemur. Í nýjustu könnun Fararheill nær Wow Air aðeins einu sinni að bjóða allra lægsta verð yfir þriggja mánaða tímabil.

Sigurvegarinn er klárlega Vueling sem er að bjóða mun ódýrara fargjald en þau íslensku í júlí og ágúst en lægsta tilboð Vueling í júní er þó átta hundruð krónum hærra en lægsta fargjald Wow Air þegar gjöld og skattar hafa verið teknir með. Það eru þeir ekki á meðfylgjandi töflu nema hjá Icelandair.

Viðbótarkostnaður er hjá bæði Wow Air og Vueling. Hjá Wow Air þarf að bæta við 900 króna bókunargjaldi og hjá Vueling 700 króna bókunargjald og 200 króna kreditkortagjald.

En þetta segir ekki alla söguna heldur því ekki margir skunda farangurslausir til Barcelóna. Sé ein 20 kílóa taska tekin með í reikninginn kemur Icelandair bara bærilega út og er líka að bjóða ódýrari fargjöld en Wow Air í júlí og ágúst. Einhvern tímann hefði það þótt saga til næsta bæjar.

Könnun gerð kl. 18 þann 20. desember 2013. Leitað samtímis á öllum dagsetningum allra flugfélaganna til Barcelóna í júní, júlí og ágúst. Verð aðra leið fyrir einn einstakling. Hafa skal í huga að mjög misjafnt er hversu mikið er af sætum á allra lægsta verði.