Það er klisjulegt en satt engu að síður. Fáar gjafir færa þiggjandanum meiri gleði, minningar, og upplífgun til lengri tíma en ferðir eða ferðalög út í heim.
Enginn man eftir öllu glingur-dótinu sem hann eða hún fékk um síðastliðin jól enda að mestu leyti orðið úrelt nokkrum mínútum síðar og hrein antík næstu jól á eftir.
En allir muna eftir hreindýrasleðaferðinni til Québec í janúar, eftir ljónum og fílum í Mósambík í apríl, faðmlagið á toppi Eiffel turnsins í París í júlí, flögrandi fiðrildum á Yukatan-skaganum í september, golfinu í Edinborg, gestrisninni á Kúbu, glögginu í Dresden, afmælinu á Alicante.
Kannski ágætt að hafa í huga nú þegar nýjustu farsímar á Íslandi kosta það sama og flug og hótel í viku eða tvær í Asíu.
Út með ykkur 🙂
South of Haiti from Alex Horner on Vimeo.
Amazônia Manauara from MOOV on Vimeo.
Journey Part 1 from Andrew Walker on Vimeo.







