Þó yfirleitt þurfi ekki að fara lengra en í sófann og aðeins út fyrir dyrnar rétt fyrir miðnætti til að eiga góða og skemmtilega stund um áramótin hérlendis er það tilfinning ritstjórnar Fararheill að þeim fjölgi Íslendingunum sem eyða vilja þeim tíma erlendis. Hvar er þá ódýrast að vera?
Þrjár stórborgir Evrópu standa langbest í verðsamanburði. Það eru Prag, Berlín og Barcelóna en frá Íslandi er aðeins í boði beint flug til Berlínar yfir þennan tíma árs. Í þeim samanburði er tekið saman hvað kostar að fljúga til og frá, hvað kostar að dvelja, borða og drekka yfir áramótin og hversu mikið er almennt í boði yfir þennan tíma.
Í ljós kemur að örfáir dagar yfir áramótin í Barcelóna eru 30 prósent ódýrari en sambærileg dvöl í Osló eða Kaupmannahöfn. Prag er 35 prósentum ódýrari og er sú borg sem léttust er á pyngjunni þennan tíma samkvæmt sérstakri verðvísitölu sem Forex bankinn tekur saman og er hér miðað við flug til og frá Noregi.
Svo eru borgir á borð við New York sem eru klassískar en enn dýrari þennan tíma en Osló. Þá er mikið sagt.








