Óhætt er að lofa Bændaferðir í venjulegan stert og hástert. Ferðaskrifstofan hefur þegar gefið út ferðabækling sinn fyrir allt næsta ár og sá svo troðinn af safaríkum ferðum að vænlegt er að hafa þurrkur við höndina.
Fyrir fólk sem kýs aðra hluti en að flatmaga á sólarströndum Spánar er venjulega fátt eitt í boði nema stöku svokallaðar sérferðir. Þess utan eru slíkar ferðir yfirleitt ekki auglýstar með ýkja löngum fyrirvara ólíkt því sem gerist hjá ferðaskrifstofum erlendis.
En það eru bóhemar að vinna hjá Bændaferðum og áhugasamir geta notið jólastundirnar sem aflögu eru til að íhuga ferðir næsta árs.
Þar má til að mynda finna Brasilíuferð næsta haust eða eftir að HM setur þar allt á annan endann. Gönguferðir upp hin ýmsu fjöll og firnindi, sérstakar ferðir í boði fyrir maraþonhlaupara í ýmsum borgum og ljúfar ferðir til Balkanskagans svo fátt sér nefnt.
Við veitum alveg sérstakan plús fyrir að bjóða ferðir til Svartfjallalands og Króatíu en þangað hefur almennt ekki verið komist með íslenskum ferðaskrifstofum. Bæði löndin hafa verið á topp fimm listum Svía og Norðmanna um nokkurra ára skeið.








