Ferðaskrifstofan Heimsferðir þarf að moka út sætum til Kanarí eftir tæpa viku og auglýsir svokallað stökktilboð af því tilefni. Ágætt vikuboð með hóteli fæst á 69.900 krónur á mann miðað við tvo saman en hótelið er þó leyndó að sinni.
Til eru þeir sem setja mikið fyrir sig að vita ekki strax hvar gista skal í slíkum ferðum og virðast margir búast við að ferðaskrifstofurnar hendi fólki á plebbahótel vel utan alfararleiðar og langt frá öðrum Íslendingum.
Reynsla ritstjórnar Fararheill er þó önnur og betri en svo.
Þvert á móti þekkjum við dæmi þess að fólkið sem tók ódýrasta pakkann með óvissuhótelinu dvaldi þegar upp var staðið á betra hóteli samkvæmt stjörnugjöf en hinir sem ákváðu að greiða aukalega fyrir ákveðna gistingu. Þá höfum við aldrei heyrt af neinum sem lenti virkilega á einhverju hryllingshóteli í slíkri ferð.
Heimsferðir bjóða þó líka ákveðið íbúðahótel í boði fyrir aðeins nokkra þúsundkalla í viðbót eða á 78.400 krónur miðað við tvo saman.
Heimasíða Heimsferða hér.






