Það er fátt auðveldara en að öfunda Norðmenn. Tvöfalt hærri meðallaun en Frónbúinn, samkeppni ríkir í verslun og þjónustu, olíupeningar vella í ríkissjóð og ofan á allt saman komast þeir til Alicante fyrir tólf þúsund krónur, Antalya fyrir sjö þúsund krónur og til Litháen og Króatíu undir tíu þúsund kallinum.
Ofangreind tilboð eru meðal þeirra sem í boði eru þessa stundina með norska lággjaldaflugfélaginu Norwegian en þar eru nú ýmis sértilboð í boði fram á sumarið.
Tilboðin eru vitaskuld í boði frá Noregi en ekki Íslandi og hafa skal í huga að verð miðast við engan innritaðan farangur sem bætist ofan á taki fólk tösku með. Á móti kemur reyndar að hægt er að stytta sér stundirnar í fluginu á netinu og er sú þjónusta innifalin í verði.
Langi Íslendinga til Alicante næstu mánuðina er tvennt í boði. Annars vegar pakkaferðir með ferðaskrifstofunum ellegar fljúga með Wow Air.
Nett úttekt á vef Wow leiðir í ljós að allra ódýrasta fargjaldið aðra leiðina kostar 28.900 krónur en meðalverð frá mars fram í júní eru þó almennt nær því að vera milli 35 og 40 þúsund krónur aðra leið.
Það er töluvert hærra en var í boði fyrir ári síðan hjá Iceland Express sem vorið 2012 bauð upp á flug aðra leiðina til Alicante frá 20 til 26 þúsund krónur á tilboðsverði.
Til að sanngirni sé gætt þá eru engin sérstök tilboð til Alicante í boði hjá Wow og reyndar ólíklegt að við sjáum nein tilboð þangað miðað við hversu margar brottfarir til Alicante eru uppseldar fram á sumarið.
* Miðað við meðalgengi krónu gagnvart norskri krónu kl. 14 þriðjudaginn 22. janúar.






