Tíðindi

Fimm borgir á tilboðsverði Wow Air

  21/01/2013desember 16th, 2013No Comments

Hægt er að velja milli fimm borgarferða með Wow Air þessa stundina á tilboði til miðnættis í kvöld.

Þúsund sæti í boði til London og Kaupmannahafnar á 12.900 krónur plús bókunargjald og komist til Parísar og Amsterdamfyrir 14.900 krónur plús bókunargjald. Þá er Lyon jafnframt í boði á 16.900 krónur plús bókunargjald.

Vor í Amsterdam er vor í lagi. Þangað er komist ódýrt í sumar með Wow Air á sértilboði þessa stundina.

Það er mjög til eftirbreytni að auglýsa nákvæman fjölda sæta sem í boði eru þó það eigi aðeins við um Köben og London. Engu að síður gott verð í boði sem dettur inn á 13.800 krónur með bókunargjaldinu en án alls farangurs. Þau tilboð eiga við um ferðir til þessara borga frá 15. apríl fram til 10. júní.

París og Amsterdam hins vegar eru í boði í allt sumar á þessu verði sem er 15.800 þegar öll gjöld er með talin en farangur ekki. Farangursgjald per tösku er 2.900 krónur hvern fluglegg og það bætist þá við taki fólk með sér töskur. En ferðatíminn, 5. júní til 31. ágúst, er fyrirtak. Sami tími er í boði til Lyon.

Heimasíða Wow Air hér en ítrekað skal að tryggja verður sér miða fyrir miðnættið.