Tíðindi

Tafir og viðvaranir vegna snjóa víða um Evrópu

  21/01/2013No Comments

Ferðalangar á þvælingi um Evrópu í dag mega búast við töfum og vandræðum á ferðum sínum en snjór og ófærð hamlar víða reglulegri starfsemi á mörgum flugvöllum álfunnar. Þá hafa verið gefnar úr snjóflóðaviðvaranir bæði í Ölpunum og Pýreneafjöllum.

Farþegar í millilandaflugi hafa þurft að bíða töluvert þessa helgina og líklega verður það raunin víða í dag og á morgun líka.

Allt fór á annan endann í Bretlandi um helgina vegna snjóa og veðurskilyrða og þurfti að aflýsa fjölda flugferða frá öllum helstu flugvöllum landsins föstudag, laugardag og sunnudag. Hafa allir flugrekendur lent í vandræðum vegna þessa og öll þurft að fresta eða fella niður ferðir.

Áfram má búast við veseni í dag og á morgun í Frakklandi og Þýskalandi að líkindum og útlit er fyrir að fresta verði þó nokkrum áætlunarferðum til viðbótar til og frá Bretlandi þó veðurfar þar sé nú snöggtum betra en það var um helgina. Ekki er um tafir eða niðurfellingar flugs að ræða frá Leifsstöð í Keflavík á þessari stundu.

Snjóflóðaviðvaranir eru í gildi á nokkrum stöðum í Ölpunum og Pýreneafjöllum og skuli skíðaiðkendur á þessum slóðum hafa varann á sér.