Talið er að helmingur þeirra ferðamanna sem til Belfast koma þessi árin komi sérstaklega til að virða fyrir sér arfleifð þá sem borgarastyrjöldin í landinu skildi eftir sig. Hefur fjöldi ferðamanna til borgarinnar fjórfaldast á tíu árum.

Belfast sem borg er ekki ein af þeim mest spennandi enda heldur hefðbundin bresk borg í flesta staði. En þar áttu sér stað miklar skærur milli Kaþólikka og Mótmælenda um áraraðir og þau grimmu átök sem skildu þúsundir eftir í valnum trekkja nú ferðamenn sérstaklega að.

Og ýmislegt er jú að sjá því götur þær margar þar sem bardagar áttu sér stað bera þess enn merki. Veggmyndir finnast enn víða og kúlnagöt í mörgum byggingum sýna glögglega að hér var engu eirt. Þá er enn uppistandandi að hluta „friðarmúrinn“ sem settur var upp milli borgarhluta til að sporna við átökum.

Allmargir ferðaþjónustuaðilar bjóða sérstakar ferðir um mestu ófriðarsvæðin og kostar slíkur tveggja tíma rúntur um átta þúsund krónur á mann.