Tíðindi

Stansted aftur inn hjá Iceland Express

  03/09/2009maí 12th, 2014No Comments

Flugfélagið Iceland Express hefur ákveðið að taka upp að nýju flug til Stansted flugvallar í Englandi en félagið hefur frá því í mars á þessu ári flogið eingöngu til Gatwick flugvallar eftir að hafa notað Stansted frá upphafi. Áfram verður flogið til Gatwick.

Fararheill.is skrifaði um þetta á sínum tíma og gagnrýndi eins og sjá má hér. Vildi forstjóri Iceland Express meina að um betri þjónustu væri að ræða en því var ritstjórn Fararheill ekki að öllu leyti sammála. Kemur nú í ljós að ástæða fyrir sinnaskiptum forstjóra Iceland Express er „einfaldlega sú að við höfum orðið vör við mikinn áhuga hjá viðskiptavinum okkar að halda áfram að fljúga til Stansted.“

Geta íslenskir neytendur því loks aftur notið lágra flugfargjalda frá Stansted en engin lágfargjaldaflugfélög fljúga frá Gatwick og langur vegur er á milli þessara tveggja flugvalla.