Flugfélagið Iceland Express mun héðan í frá fljúga til Gatwick flugvallar á Englandi í stað Stanstead flugvallar eins og gert hefur verið frá upphafi. Var tilkynnt formlega um þetta í dag en viðskiptavinir sem bókað hafa flug fram í tímann hafa orðið þessa varir nokkuð fyrr.
Að sögn Matthías Ilmsland, forstjóra, er breytingin gerð með hagsmuni neytenda að leiðarljósi. Styttra er til London frá Gatwick og fleiri flugfélag fljúga frá Gatwick en Stanstead sem gefur ferðafólki enn betri tækifæri á fjölþættu tengiflugi.
Vissulega er rétt að Gatwick er mun nær London en Stanstead og að því leyti betri þjónusta gagnvart þeim er þangað ætla. Gatwick flugvöllur sjálfur þykir þægilegur og hefur verið valinn besti flugvöllur Bretlands í nokkur skipti.
Annað er hins vegar rangt. Hvergi er flogið til fleiri staða innan Evrópu en frá Stanstead og tæplega milljón fleiri ferðamenn fara um Gatwick en Stanstead sem þýðir að almennur biðtími getur lengst og meiri erill er almennt á þeim flugvelli. Þá segir sig sjálft að slys og óhöpp eru líklegri þar sem fleiri flugvélar koma saman. Að síðustu fara fleiri lágfargjaldaflugfélög frá Stanstead en Gatwick ekki síst stærsta slíka flugfélag heims Ryanair.
Sjá ferðamöguleika til og frá flugvöllum kringum London hér.
Heimasíða Gatwick flugvallar.
Heimasíða Stanstead flugvallar






