Allt er nú til er jafnan viðkvæðið þegar eitthvað kemur Íslendingum undarlega fyrir sjónir. Það á fyllilega við þegar Ostahlaupið ber á góma.
Sú athöfn þykir svo út í hróa að keppnin hefur náð gríðarlegum vinsældum og þúsundir fylgjast með þegar keppendur elta fjögurra kíló hringlaga oststykki niður bratta hæð. Sigurvegarinn er eðli málsins samkvæmt sá sem handsamar ostinn fyrst.
Það sem áhorfendum þykir hvað forvitnilegast fyrir utan hreint skemmtanagildið að líta nokkra hálfvita elta ost niður hæð er sú staðreynd að slys eru afar tíð í keppninni og hefur hún á stundum verið bönnuð af lögreglu fyrir vikið. En vinsældirnar eru slíkar að slík bönn eru tímabundin og nú er keppnin orðið það stór að gestir langt að eru farnir að gera sér far um að vera á staðnum þegar hún fer fram.
Heimasíða keppninnar hér.



