Þann níunda maí ár hvert er lokum Seinni heimsstyrjaldarinnar víða minnst en dagurinn hefur hlotið nafnið Victory Day enda gáfust Þjóðverjar þann dag upp fyrir Sovétmönnum árið 1945.

Níunda maí ár hvert eru víða um heim athafnir til minningar um þá sem fórust í Seinni heimsstyrjöldinni.
Á þessum degi er líka allra þeirra minnst sem létu lífið á D-Deginum 1944 þegar Bandamenn réðust loks til atlögu við heri Hitlers á ströndum Frakklands.
Atlagan sú kom herjum Hitlers mjög á óvart enda var ráðist fyrst til atlögu á strönd Normandy sem var lengsta leið sem hægt var að fara sjóleiðis frá Bretlandi. Varð aðgerðin sem hlaut nafnið Overlord árangursrík að lokum en mannfall ægilegt eins og sögubækur skýra frá.
Sérstök athöfn er þennan dag víða í frönskum borgum og athafnir við nánast alla kirkjugarða meðfram norðurströnd Frakklands. Sérstaklega er mikið gert úr í bæjunum Caen og Bayeux og er hverjum manni hollt að vitna einu sinni á lífsleiðinni eða svo. Þess utan eru athafnir þessar tilkomumiklar því fólk klæðir sig í sitt fínasta púss og þeir sem enn lifa og upplifðu þær hörmungar sem stríðið var eru skreyttir í bak og fyrir. Áhrifamikið.







