Tíðindi

Ferðablað undir fölsku flaggi

  17/09/2009maí 11th, 2014No Comments

Fátt er dapurra en þegar fjölmiðlar sem sigla gjarnan undir flaggi frjálsræðis og hlutleysis leiðast út hluti sem eru svo áberandi ekki í takt við hvorugt. Enn verra þegar stærstu fjölmiðlar landsins verða sekir um slíkt og kasta með því rýrð á sjálfa sig og um leið ryki í augu lesenda sinna.

Síðasta ferðablað Fréttablaðsins er eitt dæmi um þetta. Að frátalinni myndaseríu frá hálendi Íslands og aðkeyptum ferðapistli eru í raun aðeins tvær stærri greinar í blaðinu. Önnur um „Leyndardóma Tælands“ og hin um „Fjórar góðar haustferðir.“ Enginn blaðamaður er skráður sem höfundar þessara tveggja greina.

Verst er að ein stærsta auglýsingin í blaðinu er heilsíðuauglýsing frá Úrval – Útsýn um Tælandsferð í desember. Tælandsferð sem kostar frá 295 þúsundum á mann eða tæplega 600 þúsund fyrir hjón eða sambýlisfólk. Fjallar greinin „Leyndardómar Tælands“ um þessa ákveðnu ferð ÚÚ.

Ein ferðin í „Fjórar góðar haustferðir“ er líka á vegum ÚÚ en þar koma líka við sögu Icelandair, Iceland Express og Heimsferðir. Að Heimsferðum frátöldum eru allir aðilar með auglýsingar í þessu litla ferðablaði Fréttablaðsins.

Spurt er hvort þessi lýsing: „Gríptu þetta einstaka tækifæri og smelltu þér í einstaka helgarferð þar sem tíminn nýtist einstaklega vel en flogið er út að morgni fimmtudags og komið heim að kvöldi mánudags“, eigi meira skylt við blaðamennsku eða auglýsingu úr bæklingi ferðaskrifstofunnar.

Hvað finnst þér? Er eðlilegt að birta flennigreinar um ferðir sem eru auglýstar í bak og fyrir í sama blaði?