Heimsferðir bjóða nú allra síðustu sæti sín til Prag í Tékklandi á sértilboði. Um er að ræða 2 fyrir 1 tilboð en ferðin er milli 24. og 27. september.
Prísinn er 39.900 krónur á manninn og ferðaskrifstofan býður hótel frá 4.900 krónur.
Mat Fararheill: Prag er dásamleg, ekki síst á haustin og þó verðið fari ekkert í sérstakar bækur er tilboðið viðunandi. Þá er stór plús að Prag er tiltölulega ódýr borg og krónan okkar dugar þar lengra en víðast annars staðar.






