Eftir þriggja ára lokun meðan á umfangsmiklum endurbótum stóð hefur Skoska þjóðarsafnið, National Museum of Scotland, loks opnað dyr sínar að nýju og það með miklum bravúr.
Eru spekingar sammála um að vart hafi tekist betur til enda var lítið til sparað því kostnaður við endurbæturnar nam litlum níu milljörðum króna eða sem samsvarar öllu aflaverðmæti íslenskra skipa í janúar 2011.
Fyrir vikið er safn þetta í Edinborg strax komið í hóp betri safna Bretlands að mati þeirra sem til þekkja og miðað við þann fjölda gripa sem þar eru til sýnis í 19 mismunandi sýningarsölum er þetta fínt stopp fyrir Íslendinga á ferð um Edinborg. Ekki síst því aðgangur er ókeypis.
Það er staðsett í gamla borgarhlutanum við Chambers stræti örskammt frá Royal Mile og er opið alla daga milli 10 og 17.






