Eins og ritstjórn Fararheill hefur kvartað reglulega undan fremur fátæklegu úrvali áfangastaða íslenskra ferðaskrifstofa síðustu misserin verður að taka því fagnandi að ferðaskrifstofan Heimsferðir býður nú á nýjan leik ferð til Kúbu yfir háveturinn.
Auglýsir ferðaskrifstofan reyndar aðeins eina slíka ferð en ferðalög til Kúbu hafa ekki verið í boði héðan um tæplega fjögurra ára skeið. Sem vekur nokkra furðu því þær ferðir sem í boði voru lengi vel voru vinsælar mjög.
Og tímasetningin gæti sennilega ekki verið betri því Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að hefja ferli sem auðveldar þarlendum að ferðast til Kúbu. Þarf ekki nema eyða nokkrum klukkustundum á vinsælum ferðamannastöðum í Mexíkó til að átta sig á að opnist Kúba fyrir fjöldatúrisma verður margt það sem er heillandi við landið í dag horfið innan skamms.
Býður ferðaskrifstofan upp á blandaðar ferðir bæði til strandbæjarins Varadero og höfuðborgarinnar Havana.
Um verðlagningu má lengi deila en ódýrasta fargjaldið á mann miðað við tvo er 270 þúsund krónur. Ritstjórn þykir heldur klént að bjóða einungis eina ferð og það aðeins í eina viku. Flugið fram og tilbaka tekur jú sextán klukkustundir og sex dagar á Kúbu gefa ekkert færi á öðru en kynnast því yfirborðskenndasta.
Heimasíða Heimsferða hér.






