Tíðindi

Kæra flestar ákvarðanir Flugmálastjórnar

  28/07/2011desember 5th, 2014No Comments

Ferðasalinn Iceland Express hefur það sem af er árs kært meirihluta skaðabótaákvarðanna Flugmálastjórnar til innanríkisráðuneytisins sem fer með lokaorð í vafamálum er varða bætur flugfarþega.

Óskaði Fararheill.is eftir upplýsingum frá ráðuneytinu um fjölda kæra á yfirstandandi ári hjá bæði Iceland Express og Icelandair en í þeim tilfellum fallast flugfélögin ekki á úrskurði Flugmálastjórnar varðandi bætur til handa farþegum er telja sig eiga bætur inni vegna tafa, seinkana eða niðurfellingar flugs.

Er munurinn svart og hvítt því kærur Iceland Express eru átján talsins vegna 28 ákvarðanna Flugmálastjórnar á árinu en Icelandair hefur aðeins kært eina ákvörðun enn sem komið er af þeim tíu sem tekið hefur verið afstaða til á árinu.

Fengust þær upplýsingar hjá innanríkisráðuneytinu að aðeins einu slíku máli sé lokið hvað Iceland Express varði.

Var þar staðfestur úrskurður Flugmálastjórnar að ferðasalinn ætti að greiða 400 evrur í bætur til handa konu sem missti af flugi sínu frá Keflavík eftir að flugið var fært til Akureyrar með litlum fyrirvara á síðasta ári.