Tíðindi

Plúsferðir með tilboð til Alicante

  22/03/2012desember 25th, 2013No Comments

Til Alicante á Spáni verður komist á völdum dagsetningum í apríl og maí með ferðaskrifstofunni Plúsferðum fyrir 49.900 krónur báðar leiðir að því gefnu að almenningur kaupi ferðina frá hádegi í dag. Þá hefst sólarsprettur ferðaskrifstofunnar og stendur í sólarhring.

Um gott boð hjá Plúsferðum er að ræða en til samanburðar kosta ferðir Icelandair og Iceland Express þessa leið fram og til baka í apríl eða maí vart undir 75 þúsund krónum með svo litlum fyrirvara samkvæmt verði á vef þessara aðila.

Gagnrýnivert er þó kannski að ekki er tiltekinn fjöldi sæta sem í boði verða né heldur hvaða flugdagar verða í boði en þær upplýsingar gætu auðveldað viðskiptavinum töluvert ákvörðun og ekki síður leitina.

Þá vakna upp spurningar um orðalagið á vef Plúsferða. Þar virðist vera töluvert meira í boði en aðeins flugið og þá meðtalin gisting og íslensk fararstjórn.

FLUGFAR báðar leiðir með sköttum:
49.900 kr.*
Valdar dagsetningar í apríl og maí
* Flug, flugvallaskattar, gisting og íslensk fararstjórn innifalið í verði.