Ferðaskrifstofan Heimsferðir fagnar 20 ára afmæli sínu í dag og býður af því tilefni 20 þúsund króna afslátt á tilteknum pakkaferðum sínum næstu fjóra dagana fram á sunnudag eða meðan birgðir endast.
Ber að óska ferðaskrifstofunni til lukku með stóra daginn og lítill vafi leikur á að 20 þúsund króna afsláttur á mann mun aldeilis telja fyrir þá sem tryggja sér ferðir næstu dagana.
Hins vegar gerir ferðaskrifstofan sömu mistök gagnvart neytendum og flestir aðrir. Hvergi kemur fram á afmælistilboðssíðu hversu mörg sæti í eru í boði á afsláttarverði og hvert nákvæmlega en skýrt er tekið fram með blóðrauðum stöfum að margar brottfarir séu uppseldar. Sú yfirlýsing gefur til kynna að fólk þurfi að leita nokkuð.
Ritstjórn Fararheill prófaði að bóka tvær ferðir til Mallorca í sumar en hvergi í bókunarferlinu kom fram 40 þúsund króna afsláttur á þá tvo sem þar hugðust ferðast. Verið getur þó að það komi fram við greiðslu.
Önnur tilboð í gangi hjá ferðaskrifstofunni þegar þetta er skrifað er tilboð um páskana til Benídorm á Spáni auk flugtilboðs til Billund í Danmörku og frá Osló í Noregi.
Heimasíða Heimsferða hér.






