Eru samkeppnisaðilar Iceland Express að reyna að klekkja á flugfélaginu með klækjabrögðum? Það telur Iceland Express ekki útilokað og bendir á að allir stjórnarmenn Flugfreyjufélags Íslands sem boðað hefur flugliðaverkfall eftir eina viku eru starfsmenn Icelandair og Wow Air.
Hefur Flugfreyjufélagið boðað til verkfalls eftir viku og fengið blessun Félagsdóms að kröfur þeirra um forgang í störf yfirflugfreyju um borð í vélum tékkneska flugfélagsins CZA Holidays sem á og rekur vélar þær sem Iceland Express notar séu sanngjarnar og samkvæmt hérlendum reglum.
Hins vegar er kveðið á um í rekstrarhandbók CZA að fyrsta freyja í vélum félagsins skuli vera frá CZA þangað til fullnægjandi starfsþjálfun hefur farið fram. Þannig eru í dag allir flugliðar Iceland Express nema fyrsta freyja íslenskir en það telur Flugfreyjufélagið ekki duga og hefur boðað verkfall.
Kemur fram í tilkynningu Iceland Express vegna málsins að fjórir af fimm stjórnarmönnum í Flugfreyjufélaginu séu starfsmenn samkeppnisaðilans Icelandair, auk þess sem fimmti stjórnarmaðurinn sé við að hefja störf hjá Wow Air. Sömuleiðis fylgi fyrsta freyja frá Icelandair ávallt með þegar það flugfélag leigir vélar í verkefni erlendis.






