Sé fimmtán þúsund kall í vasa og hugurinn ekki hér heima er ráð að grípa skynditilboð flugfélagsins Wow Air sem til níu í fyrramálið býður flug til þriggja þýskra borga aðra leiðina fyrir 14.900 krónur.
Um er að ræða borgirnar Köln, Stuttgart og Berlín en fyrir utan verðið er sérstakt við tilboðið að flugtími er ekki takmarkaður eins og raunin er gjarnan þegar slík tilboð eru boðin.
Enn ódýrara er reyndar að kaupa farið til baka því það kostar 14.684 krónur og samtals er því komist til þessara þýsku borga fyrir 29.584 krónur til morguns.
Um talsverðan sparnað er að ræða fljúgi fólk á annatíma því sams konar ferðir eru að rokka almennt á bilinu 38 til 55 þúsund krónur um þessar mundir.
Heimasíða Wow Air hér.






