Áhugafólk um vín og mat gæti gert verri hluti en fara að safna saman rúmlega 400 þúsund íslenskum krónum og panta flugfar til London í haust. Breska ferðaskrifstofan JetlineCruise býður nú tólf nátta skemmtisiglingar þar sem vín og vínmenning er í fyrirrúmi.
Um er að ræða siglingar til Frakklands, Spánar og Portúgal frá Southampton á lúxusfleyum en á öllum áfangastöðum er rokið í land og frægar víngerðir heimsóttar og uppskeran smökkuð. Þekktir vínframleiðendur munu kynna sínar vörur og útskýra allt sem útskýra þarf varðandi vín og víngerð. Um borð er heldur ekki dapurt úrval vína og sérstök vínsmökkunarkvöld í gangi alla ferðina.
Skipið stoppar í Le Havre í Frakklandi í tvo daga, tvo daga í Verdon í Bordeaux héraði, tvo daga í Bilbao og einn dag í Vigo á Spáni og loks einn dag í Leixoes í Portúgal skammt frá Porto. Allir staðirnir verðskulda heimsókn burtséð frá þeirri vínmenningu sem þeir eru allir þekktir fyrir. Ekki er heldur dapurt að í boði gegn aukagreiðslu einar þrjár kynnisferðir meðan á ferðinni stendur til Parísar, Bilbao og síðast en ekki síst Santiago de Compostela.
Jetline er að bjóða slíkar ferðir allt næsta haust og fram eftir vetri á töluverðum afslætti eins og sjá má á heimasíðu þeirra hér.
Sé pantað með fyrirvara má tryggja sér deluxe herbergi með svölum kringum þúsund pund sem miðað við gengi dagsins gerir 199 þúsund krónur á mann. Þá á vitaskuld eftir að koma sér til London en þaðan er stutt til Southampton á suðurströndinni.
Í öllu falli prímaferð fyrir vínsælkera og þá sem forvitnir eru um vín og vínmenningu.






