Hvorki fleiri né færri en þrjár milljónir íbúðareigenda í 250 löndum heims vilja leyfa þér að gista heima hjá sér og þiggja ekkert fyrir nema ánægjuna. Það gildir jafnt um New York og Haítí.
Það er skráður fjöldi þeirra sem auglýsa gistingu og eða aðstoð og hjálp við ókunnuga á vefmiðlinum Couchsurfing.org sem átti sitt allra besta ár 2011. Kannski ekki furða þegar efnahagur milljóna hefur versnað til muna meðan lystin á ferðalögum er hin sama og jafnvel meiri en áður.
Fararheill hefur áður ritað um Couchsurfing og tveir úr ritstjórn hafa reynslu af því að gista hjá góðu fólki gegnum miðilinn. Reynslan af því hefur eingöngu verið góð og hræðsla sú sem flestir kannski hafa við að taka fólk inn eða vera inni hjá ókunnu fólki erlendis ávallt horfið eins og dögg fyrir sólu á fimm mínútum. Segir það sig enda sjálft að eingöngu fólk sem hefur raunverulegan áhuga að kynnast nýju fólki er reiðubúið að opna heimili sitt fyrir útlendingum með litlum fyrirvara og það jafnvel í marga daga.
Sömuleiðis eru reynsla ferðalanga sem tjá sig á hinum ýmsu ferðavefmiðlum góð og algjör undantekning að einhver lendi í slæmum hlutum þó vissulega séu margir sem ekki fíla alla sem þeir taka inn eða gista hjá.
Það er líka hið góða við Couchsurfing að gestir gefa húsráðendum einkunnir og af þeim má ráða hvort þetta sé eitthvað fyrir þig eða þína fjölskyldu.
Með tilliti til að gistikostnaður almennt hefur hækkað töluvert síðustu tvö árin yfir línuna í heiminum öllum er þetta kjörið ráð til að ferðast ódýrt og njóta gestrisni heimamanna á meðan. Það er alvöru ferðalag.
Heimasíða Couchsurfing.org hér.






