Tíðindi

Indland kannski ekki svo öruggt

  19/03/2012janúar 9th, 2015No Comments

Hryðjuverkaárásir eru ekki nýtt fyrirbrigði í Indlandi og er skemmst að minnast fjölda sprenginga í borginni Mumbai í fyrra og árið 2008 sem urðu fjölda manns að fjörtjóni. Slík hryðjuverk hafa að mestu beinst að indverskum stjórnvöldum og ferðamenn ekki verið sérstök skotmörk. Það gæti verið að breytast því tveimur ítölskum ferðamönnum var rænt í Kandhamal héraði í Orissa fylki.

Til slíkra ráða hafa öfgasamtök á Indlandi sjaldan gripið til áður til að fá sínu fram en samtök herskárra Maóista hafa viðurkennt að hafa Ítalina í haldi. Þykir þetta líta afar illa út því stjórnvöld hafa sérstaklega hin síðari ár lagt áherslu á að kynna Orissa fylkið sem úrvals ferðamannastað.

Þá fara glæpir hratt vaxandi í Goa fylkinu sem er sá staður sem hefur undanfarin ár verið hvað vinsælasti áfangastaður erlendra ferðamanna í landinu. Vændi og smáþjófnaðir hafa mjög aukist og nauðganir og jafnvel morð eru þar furðu tíð og hafa vakið upp spurningar um öryggi á indverskum stöðum.