Það er enginn tími eins og núið og það á við um fargjöld flugfélaganna en fræðingar flestir eru sammála um að fargjöld yfir línuna í Evrópu og Bandaríkjunum eigi eftir að hækka nokkuð þegar líður fram að vori og sumri. Tíminn sé því nú að tryggja sér flug.
Eini rekstrarkostnaðurinn sem flugfélög heimsins fá litlu ráðið um er eldsneytisverð en flest reikna þau slíkt fram í tímann og miða verðskrá sína við þá útreikninga. Inni í þeim er oftar en ekki gert ráð fyrir einhverjum hækkunum en verði þær meiri en gengur og gerist er gjaldskráin endurskoðuð hið fyrsta.
Og eins og íslenskir bíleigendur hafa orðið vitni að hefur eldsneytisverð hækkað ört síðustu vikurnar og það á líka við um flugvélabensín það sem flugfélögin nota á vélar sínar.
Færa má sterk rök fyrir að þeir sem hyggjast leggja land undir fót næstu mánuðina ættu ekki að bíða mikið lengur með miðakaup því þeir aðilar sem héðan fljúga, Icelandair, Iceland Express, Wow Air og erlendir aðilar gætu með litlum eða engum fyrirvara hækkað verðskrár sínar. Reglan er að slíkt er almennt ekki tilkynnt heldur smyglað út í verð svo lítið beri á.
Vestur í Bandaríkjunum mæla ferðamiðlarnir Farecompare. com og Airfarewatchdog.com þegar nokkra almenna hækkun á miðaverði og báðir aðilar segja í samtali við USA Today að líkurnar á meiri hækkunum séu líklegri en ekki.
Ástæðan sú að ekkert lát virðist vera á bensínhækkunum á heimsmarkaði og það er enn á uppleið þegar þetta er skrifað. Fyrr en síðar verða flugfélögin að taka mið af því enda eldsneytiskostnaður milli 35 og 40 prósent af heildarkostnaði flugfélaga.






