Tíðindi

Plúsferðir kynna plús vikunnar

  16/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Eigi einhver enn eftir að kveðja farsæla Frón tímabundið, gleyma Icesave og verðtryggingu augnablik og sleikja sól við fjarlæg höf er tækifæri nú því ferðaskrifstofan Plúsferðir hafa nú tekið upp nýjung sem þeir nefna Plús vikunnar.

Fyrir utan að gefa í skyn að þar megi þá vænta tilboða í hverri viku er ferðaskrifstofan þar að bjóða tvær ferðir til Spánar næstu dægrin.

Annars vegar vikuferð með öllu inniföldu til Roquetas de Mar á Costa de Almería fyrir 99 þúsund krónur á mann miðað við tvo einstaklinga. Samanlagt 198 þúsund krónur eða sex þúsund krónum ódýrara á mann en sams konar tilboð sem bauðst fyrir viku síðan en þá aðeins fyrir tvo fullorðna með tvö börn. Gallinn sá að brottför er á föstudaginn kemur.

Hins vegar er ellefu daga ferð til Tenerife á Kanaríeyjum þann 25. ágúst á sama verði fyrir einstakling miðað við tvo saman eða 99 þúsund á mann.

Miðað við það sem gerist í þessum bransa hérlendis eru tilboðin allvænleg geti fólk stokkið til fyrirvaralítið.

Tilboð Plúsferða hér.