Ítarlega rannsókn tælenskra yfirvalda í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina á undarlegum dauða fimm erlendra ferðamanna í Chiang Mai í Tælandi síðasta vetur hefur ekki leitt neitt annað í ljós en að dánarorsök hafi mögulega verið einhvers konar eitrun.
Vakti dauði fimm ótengdra erlendra ferðamanna og slæm veikindi tuga annarra í borginni Chiang Mai í norðurhluta Tælands í janúar og febrúar á þessu ári töluverða athygli. Var um tíma óttast að nýr faraldur væri á ferð en síðan hefur ekkert óeðlilegt átt sér stað.
Rannsóknarteymi frá sjónvarpsstöð á Nýja-Sjálandi fullyrðir hins vegar að dauða fólksins megi rekja til ofnotkunar á skordýraeitri í þeim tveimur hótelum þar sem dauðsföllin áttu sér stað. Var einn þeirra sem lést frá Nýja-Sjálandi en hinir frá Bretlandi og Bandaríkjunum.
Þó stjórnvöld í Tælandi hafi ekki fallist á það hefur eftirlit með notkun skordýraeiturs á hótelum þarlendis verið aukið í kjölfarið.
Chiang Mai er einn af vinsælustu áfangastöðum ferðamanna í Tælandi.






