Hafa verður hraðann á hyggist fólk heimsækja Frelsisstyttuna á Liberty eyju í New York því frá og með næsta nóvember fer styttan í andlitslyftingu og verður lokuð á meðan um eins árs skeið.
Þetta frægasta minnismerki New York borgar verður þannig ekki hægt að skoða innanfrá þann tíma en 90 prósent þeirra 3,5 milljóna sem árlega sem sigla til eyjunnar fara upp í styttuna miklu sem verður 125 ára gömul þann 28. október næstkomandi. Áfram verður þó Liberty eyjan sjálf opin áhugasömum.
Ekki mun verða áberandi munur á styttunni nú og eftir framkvæmdirnar því þær snúast nær eingöngu um uppfærslu á rafmagni og brunagöngum, klósettum og stigum.






