Hvað sem mönnum finnst um Dani og þeirra lífsmáta er litlum blöðum um að fletta að Daninn og Íslendingurinn eru á höttunum eftir því sama í sólarlandaferðum. Sól og nóg af henni.
En hvar skyldi besta sumarveðrið hafa verið þetta sumar? Þá spurningu lagði ferðaskrifstofan Spies í Danmörku fyrir 60 þúsund farþega sína frá 1. maí til 10. ágúst.
Voru farþegarnir beðnir að gefa veðrinu á þeim stöðum sem þeir dvöldu á einkunn frá einum og upp í fimm og var fimm allra besta veður meðan einn þýddi rigningar eða þaðan af verra og almenn leiðindi þess vegna.
Sökum þess að íslenskar ferðaskrifstofur bjóða afskaplega takmarkað úrval ferða eru aðeins þrír staðir á lista þeirra dönsku sem Íslendingum gefst nú færi á að heimsækja í beinu flugi en listinn eru svona:
- Hurghada, Egyptaland ( 4,83 )
- Thassos, Grikkland ( 4,71 )
- Kos, Grikkland ( 4.70 )
- Parga, Grikkland ( 4.69 )
- Lesbos, Grikkland ( 4,69 )
- Skiathos, Grikkland ( 4,68 )
- Kanaríeyjar, Spánn ( 4,66 )
- Bodrum, Tyrkland ( 4,62 )
- Antalya, Tyrkland ( 4,59 )
- Rhodos, Grikkland ( 4,50 )






