Tíðindi

Óðaverðbólga hjá Icelandair

  13/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Hvað veldur því að yfir fjögurra daga tímabil hækkaði eitt og sama fargjald Icelandair fjóra mánuði fram í tímann um 44.310 krónur á mann?

Ritstjórn Fararheill rakst á það fyrir tilviljun að farmiði fyrir tvo einstaklinga til Orlando í Flórída 11. til 23. nóvember næstkomandi hækkaði ört og duglega frá sunnudeginum 8. ágúst síðastliðnum og fram til gærdagsins. Var ekki um eina hækkun að ræða heldur tvær á þessu tímabili.

Sunnudaginn 8. ágúst fékkst umrætt flugfar fyrir tvo saman á 282.560 krónur á vef Icelandair. Í boði svokallað economy flex fargjald út og economy comfort fargjald heim aftur. Miðvikudaginn 10. ágúst var verð á sömu miðum í sömu sætum komið í 307 þúsund krónur og fimmtudaginn 11. ágúst hækkaði gjaldið enn og fór í 371.180.

Er það fargjald enn í boði á vef flugfélagsins þegar þetta er skrifað.

Þrátt fyrir óskir um skýringar á 44.310 króna hækkun á sama farinu daga á milli fengust þær ekki hjá Icelandair.

Vafalítið liggur svarið þó í því að sætum í þessa umræddu ferð fækkar stöðugt og því sannast að flugfélagið smyr nokkuð duglega á síðustu lausu sætin á vinsæla áfangastaði sína. Því ekki hækka gjöld og skattar eftir því sem sætum fækkar.