Tíðindi

Icelandair vs. Iceland Express

  13/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Samkeppni eða fákeppni? Það er stóra spurningin sem ritstjórn Fararheill veltir ítrekað fyrir sér í ljósi þess að íslenskir mölbúar hafa aðeins úr tveimur flugfélögum að ræða nú þegar sumarið er á enda komið.

Öll þau erlendu flugfélög sem hingað hafa flogið í sumar og hafa sum hver boðið allsamkeppnishæf verð eru að hverfa á braut í lok ágúst og óvíst hvort þau munu veita samkeppni áfram á næstu sumarvertíð.

Þess vegna fannst ritstjórn þjóðráð að vega og meta hvort Icelandair eða Iceland Express hygðust bjóða okkur betri kjör til London og Kaupmannahafnar í september.

Samanburðurinn byggir á lægsta verði flugfélaganna á umræddum dögum í september með sköttum og gjöldum fyrir einn einstakling á almennu farrými eða ódýrasta fáanlega farrými annars.

Tilviljun réði því að verðleitin var gerð aðra leiðina í einu en oft má reyndar fá betri prísa með því að bóka saman flug fram og til baka.

Úttektin er gerð kl. 20 föstudaginn 12. ágúst.