Tíðindi

Danskir njóta kostakjara hjá Iceland Express

  17/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Allir þeir sem eiga danskar krónur eða kreditkort geta á stundum komist til Íslands fyrir mun lægra verð en þeir sem borga þurfa fargjöld með íslenskum krónum. Er þetta sannarlega eitthvað sem blankir íslenskir nemar erlendis geta haft í huga næst þegar heimþráin gerir vart við sig.

Var athygli ritstjórnar vakin á því að feykilega mikill verðmunur er á sömu flugferðum Iceland Express eftir því hvaða gjaldmiðill er notaður við miðakaupin.

Eftir nokkrar stikkprufur á fargjöldum ferðasalans til og frá nokkrum áfangastöðum flugfélagsins kemur í ljós að æði mikill munur getur verið á sama fargjaldi hverju sinni.

Áberandi er þó hversu mjög danskir ná góðum kjörum og fljúga fram og til baka frá Kaupmannahöfn mun ódýrar en þeir sem verða að punga út í íslenskum krónum.

Á þessu er reyndar takmarkað að græða sökum gjaldeyrishaftanna en óheimilt að greiða með íslensku kreditkorti í erlendum gjaldmiðli. En eigi fólk erlenda vini er greinilega á stundum hægt að spara nokkrar upphæðir eins og sést á meðfylgjandi töflu.

Kannaði Fararheill sömuleiðis hvernig þessu væri farið hjá Icelandair. Fargjald fyrir Íslending til Kaupmannahafnar 6. – 15. september, svo dæmi sé tekið, fékkst ódýrast á 37.220 krónur. Daninn hins vegar þarf að greiða 46.837 fyrir fargjald frá Kaupmannahöfn til Íslands þessa sömu daga.