Hætt er við að útrásarvíkingurinn Karl Wernersson sem samkvæmt nýlegum fregnum dvelur í góðu yfirlæti í lúxussetri sínu í Toskana héraði á Ítalíu fari líklega lítið út fyrir hússins dyr þessa dagana líkt og margir aðrir í héraðinu.
Það hefur nefninlega sést ítrekað til svarts pardusdýrs á sveimi í héraðinu að undanförnu og hefur lögregla uppi mikinn viðbúnað til að leita dýrið uppi. Hefur það enn engan árangur borið.
Segir Der Spiegel frá vandræðum íbúa Toskana vegna þessa en Toskana þykir eitt fallegasta hérað Ítalíu og þótt víðar væri leitað. Þangað sækja ferðamenn árlega í þúsundavís og margir leigja sér þar villur sumar eftir sumar.
Ekki er hundrað prósent víst að um pardusdýr sé að ræða heldur aðeins gengið út frá að svo sé byggt á þeim vitnum er hafa orðið kattarins vör.
Er svæðið mikið kjörlendi fyrir slík dýr því gnótt er af villtum dýrum auk búfénaðar og héraðið er stórt og tiltölulega strjálbýlt.






